top of page
Screenshot 2020-04-27 at 10.03.01.png
2018-07-14 at 10-45-04.jpg
2017-09-13 at 09-46-44.jpg
2014-06-28 at 11-14-31.jpg

Ingólfshöfðaferð

Sögu og fuglaskoðun í Ingólfshöfðafriðlandi

  • Heykerruferð yfir vötn og sanda 

  • Gönguferð um Ingólfshöfðafriðland
    með leiðsögn

  • Söguútskýringar og fuglaskoðun

  • 99.9% líkur á að sjá lunda

Daglegar brottfarir mánudaga til laugardaga frá miðjum maí fram að miðjum ágúst

Lengd ferðar alls:

2 1/2 klst

Þar af akstur:

1 klst

Ganga með leiðsögn um friðlandið:

U.þ.b. 1 1/2 klst

 

Erfiðleikastig:

Frekar auðveld ganga nema að fyrsti kaflinn upp á höfðann sem liggur upp bratta sandbrekku tekur ágætlega á

Verð 2024

Fullorðnir - 10.000 kr

6-12 ára - 5000 kr

Ekki heppileg ferð fyrir ung börn

20% afsláttur ef notaður er promo code í bókunarsíðunni: ferðumst innanlands

Brottfararstaður:

Ingólfshöfðabílastæðið er 2 km fyrir sunnan þjóðveginn milli bæjanna Hofsness og Fagurhólsmýrar. Vegurinn þangað er merktur Ingólfshöfði og það er skilti með mynd af lunda við veginn líka.

Ingólfshöfði er afskekktur klettahöfði sem rís upp af ströndinni mitt á milli Skaftafells og Jökulsárlóns. Höfðinn er nefndur eftir fyrsta landnámsmanni Íslands, Ingólfi Arnarsyni sem hafði vetursetu við höfðann árið 874.
Ingólfshöfði er friðlýstur og þar er heimili þúsunda sjófugla, þar á meðal lunda og skúma.


Leiðarlýsing:

Til að komast að Ingólfshöfða þurfum við að aka 7 km leið yfir vötn og sanda. Við notum heyvagn og dráttarvél til að komast í Höfðann og tekur aksturinn um 30 mínútur hvora leið. Þegar stigið er af kerrunni tekur við brött sandalda sem mörgum sýnist erfið í fyrstu. Hins vegar þá pössum við að allir geti hvílt sig eftir hvern kafla göngunnar og stoppum reglulega til að segja sögur eða skoða eitthvað áhugavert í Höfðanum.
Gönguhringurinn sjálfur er um 2,5 km. Við mælum ekki með að fara í ferðina nema þú treystir þér til þess að taka þátt í þessari frekar léttu göngu.

Hér eru myndir úr Ingólfshöfða sem segja meira en 1000 orð.

Vinsamlega athugið, til að brottför sem auglýst er á bókunardagatalinu sé örugglega farin þá þurfa einhverjir að vera bókaðir í hana. Núna erum við að fara 10:15 og 13:30 ef einhver er bókaður. Það þarf lágmark 2 viðskiptavini. Suma daga eru fleiri tímar í boði. Hafið samband ef þið eruð nokkur saman og ekki er pláss. Við gerum hvað við getum.

Við erum dugleg að setja inn myndir og pósta um aðstæður í Ingólfshöfða á facebook. Facebook síðan okkar er www.facebook.com/fromcoasttomountains

20% afsláttur ef notaður er promo code í bókunarsíðunni: FERÐUMST INNANLANDS

Bókunardagaltal

Afbókunarskilmálar:

  • Ef afbókað er með meira en 14 daga fyrirvara er full endurgreiðsla.

  • Ef afbókað er með 3-14 daga fyrirvara er 90% fargjaldsins endurgreitt.

  • Ef afbókað er með 1-3 daga fyrirvara er 50% fargjaldsins endurgreitt.

  • Ef afbókað er með minna en sólarhrings fyrirvara, eða ef ekki er mætt í ferðina þá er engin endurgreiðsla.

bottom of page